|
|
30.11.2007 23:47:44 / Clemento
tjékkið á þessu stöffi magnaður náungi. Hér
»
09.11.2007 10:04:43 / Clemento
jebbs Eg hef loksins akvedid ad rifa mig upp a rassgatinu skrifa eins og eins faerslu. Tad er ekki nema bara sanngjarnt fyrir addaendur mina heima ad eg skuli skrifa. eg er ad hugsa um ad gera eitt af tessum vinsaelu punktabloggum, agalega gaman - Eg heiti Einar
- eg by i skotlandi
- sorry... ekki a lausu
- hrikalega myndarlegur
- sunna dis er haett ad blogga
- tad er ljott kvenfolk i skotlandi
- karlmenn reyndar lika...
- eg hef oftar notad bokasafn i skotlandi a tveimur manudum heldur en alla aevi mina a islandi
- tad eru ekki islenskir stafir a tessu lyklabordi
- Eg er gudfadir dottur vinar mins
- og ja, eg hef nofn a baedi eistun a mer, en ekki penisinn tvi tad er bolvud klisja...
- er klisja sfrifad med i eda y ?
- tetta er voda gaman

tetta var alveg aedi... Eg verd ad vidurkenna, adur en eg flutti ut ta kveid eg sma fyrir tvi en nuna atta eg mig a ad tetta er alveg eins og ad bua heima, eini munurinn er annad tungumal, orlitid verri matur, eg drekk meira a virkum dogum, minna um helgar. Alveg otrulegt, ef tu ferd ut a tridjudagskvoldi ta er allt vitlaust en a laugardegi ta erum menn bara i teinu. Eg kann samt bara agaetlega vid tetta allt saman, veit samt ekki med Rognu tvi hun er ekki alveg tessi villti drykkjumadur sem eg er. sem daemi ta datt eg allsvakalega i tad a midvikudaginn, lenti sidan i eftirparty eftir ad stadnum lokadi, Ragna kom med en hun drakk ekki neitt. aldrei gaeti eg farid party klukkan 1 ad nottu til og ekki drukkid, tegar eg hugsa ut i tad ta held eg ad tad se bannad... eitt sem tid verdid ad tjekka a, hljomsveit sem heitir Flight of the Conchord. fokking snilld tetta er semsagt band sem samanstendur af tveimur gaurum med kassagitara, og showid teirra er svona byggt upp eins og uppistand en eru mjög góð lög. tékkið á þessu á youtube... Tók langann tíma en fyrsta færslan kominn
»
29.09.2007 21:48:08 / Clemento
Vá hvaðer þetta.. 3 come backið mitt ? Þetta er búið að vera
stormasamt samband milli mín og blog.central.is makeupbreakup
ef þið viljið...
burtséð frá því öllu þá ætla ég að reyna að halda þessu áfram
meðan ég er í skotlandi og ég held alveg örugglega að þetta sé ekki
bara áfengið að tala, held það...
ok
»
13.11.2006 13:44:51 / Clemento
Af hverju er maður að þessu ? Er ekki nóg
komið af vitleysunni ? 5 ár finnst mér vera aðeins of mikið
og ég veit ekki um ykkur hin en ég er kominn með nóg... 13.
nóv 2006 eru tímamót, í dag er ég hættur að reykja... Af
hverju er maður að sjúga þessa vibba staura vitandi að þeir
gera manni ekkert nema slæmt... Hvaðan kemur þetta
virðingarleysi fyrir líkama sínum og öðrum ? Ég get engann
veginn svarað þessum spurningum nema með einum hætti, og það
er að hætta að reykja...
Ef þið vinir mínir eða fólk sem kannast við mig
sjáið mig úti á götu með rellu í kjaftinum þá vil biðja ykkur um að
slá mig utan undir ! Fokking vibbi... Þessi vakning kom samt bara
out of the blue, ágætis vinkona mín drap í sígarettunni í gær vegna
þess að hún eh hreyfast í maganum á sér og drap í sígarettunni í
panikki og bað okkur um að reykja ekki ofan í sig. Og af einhverjum
ástæðum fylltist maður smá stolti, og ég hugsaði af hverju geri ég
þetta ekki bara sjálfur ? Það er akkurat málið nefnilega, af
hverju... Það er engin ástæða fyrir mig að halda þessu
áfram...
Dagurinn byrjar á því að fara fram og hósta upp
úr mér lungunum, gulbrúnn viðbjóður kemur upp úr manni þrútinn í
framan eftir áreynsluna og það fyrsta sem maður gerir er að fara út
og kveikja í. Ógeðsleg lykt af manni, en maður tekur ekki eftir því
sjálfur vegna þess að aður er vanurþví að það sé vibba lykt af
manni... Og síðast enn ekki síst, peningurinn sem fer í þetta,
fáránlegt að maður skuli eyða pening í þetta
kjaftæði....
Ég hvet hvaða reykingamann sem er þarna úti til
þess að hætta, þó það sé ekki nema bara að reykja einni sígarettu
færri en í gær þá ertu á réttri leið... Ég ætla ekki að reyna
að hætta núna, ég ÆTLA að hætta og ekkert kjaftæði ! Sígaretturnar
kvaddar, og ég er búinn að drepa í þeirri
seinustu...
»
16.10.2006 15:55:28 / Clemento
Jæja... Monday, af hverju hata
allir mánudaga ? þetta fannst mér alltaf fyrir ekki svo löngu
síðan... Hataði mánudaga... En ekki lengur, því ég ákvað að hata
ekki lengur mánudaga, ég ákvað að gefa þeim séns og ég komst að
því að þeir eru bara mjög fínir.... ég til dæmis fer alltaf í
bíó á mánudögum með einum ágætis vini mínum, og er búinn að gera
það í held að fara komin 3 ár ! það er alveg slatti af bíó
ferðum !
En ástæðan fyrir mánudagshatrinu hjá
mér var, að ég held, áfengisneysla um helgina... en í þetta sinn
var ég tiltölulega edrú, og ég vaknaði bara kattferskur í morgun
tilbúinn í hvað sem er ! allavega nóg um það...
En ég var að hugsa, djöfull líður
tíminn fokking hratt !núna eru sirka 5 ár síðan ég útskrifaðist úr
grunnskóla, og ég er svona svipaður og ég var þá held ég. En margir
sem voru með manni í skóla back in tha day, eru eins og þeir séu í
einhverju kapphlaupi... ég er búinn að eyða seinustu 5 árum í að
leika mér, fyllerí og síðan restinni af tímanum eyddi ég í bull...
En svo sé ég skólasystkyni sem eru ekki einu sinni búin að ná þeim
merka áfanga að vera orðin tvítug en er kannski komin með barn
!
Á meðan að ég fyllist skelfingu við
að verða pabbi (samt er ég að verða Guðfaðir)* þá fyllast aðrir skelfingu við að
nota getnaðarvarnir bara eins og hellisbúar ! “Smokkur ?! ... Þekki
það ekki...”
Þetta þykir mér
undarlegt... En
kannski er ég bara að skjóta mig í löppina með þessum pistli, og fæ
að gjalda þess einn góðan veðurdag, kemur mér ekki á óvart vegna
þess yfirleitt þegar ég tala skít um eitthvað eða fullyrði eitthvað
þá fæ ég það beint í andlitið...
Eitt sem mér langar að tala um
líka... ég var að lesa fréttablaðið í gær og ég er brjálaður
!
Það var einhver opna um Airwaves í
blaðinu og verið að tala um þessa crunk tónlistarhátíðarvibba, fór
á þettta í fyrra og sjaldan hef ég verið fyrir jafn miklum fokking
vonbrigðum.... röð frá Nasa að Alþingishúsinu... not cool man, not
cool...
Allavega það sem ég las í blaðinu var
eitthvað kjaftæði um hvernig maður á að vera klæddur á Airwaves !
!#$$%!”#$/# ég hata svona helvítis greinar sem er verið að segja
fólki hvernig það eigi að vera... hvað er inn og hvað er út, Heitt
og kalt og hvaðeina ! ég var nærrum því farinn að hata sunnudaga
bara út af þessari grein!
“Þröngar gallabuxur, dáldið sjúskaður
stuttermabolur, töff leðurjakki og converse-skó!” Hey ég veit mætum
öll svoleiðis ! Rokk og ról snýst ekki um þetta, Rokk og ról er að
fara á móti straumnum, hneyksla aðra og vera ekki eins og aðrir,
brjóta reglur ! Samt er alltaf verið að segja manni hvernig maður á
að vera á einhverjum svona samkomum !
Andskotans... Hvað ef ég ákveð að að
mæta í jakkafötum verður mér hent út klippt á Armbandið og settur í
bann ? eða hent inn í herbergi með Fab 5 ?
Andskotans vitleysu
blaðsnepill, mér
finnst eins og ég hafi verið að lesa fokking Æskuna !
Allavega gemmér fæv öpp hæ inní hús
stubbaknús
ps. enn og aftur grillaður
titill...
»
09.10.2006 14:26:53 / Clemento
Vá maður þokkaleg
skrallhelgi liðin maður og gerðist líka shitload um
helgina...
Elísa vinkona að leika bouncer fyrir mig ef þið skiljið hvað ég á
við, og hellingur af skít sem ég má sennilega ekki segja, og ætla
því miður ekki að segja af hræðslu við lögfræðinga...
Annars var þetta geggjuð helgi fór í 3 afmæli, Addi Steffý og Tommi
öll orðin 20 og héldu misstryllt teiti...
Annars er lítið að gerast eins og er fyrir utan að ég er
náttúrulega hættur í skóla og er að fara að vinna aftur like a dog
þangað til að ég fer út til skotlands næsta haust, að læra eh crap
sem þið elskurnar hafið væntanlega mislítinn áhuga á...
Annars nenni ég varla að skrifa meira núna í bili, tilgangurinn með
þessari færslu var eiginlega titillinn sem hefur einmit falda
merkingu, og ég efast um að þið náið að crack the code en sjáum
samt til...
Holla
»
28.09.2006 20:58:38 / Clemento
Langt síðan ég hef farið hér inn... ætla að byrja að skrifa
örlítið hérna inn og tékka hvort einhver tekur eftir þessu...
Sumarið búið og ég kom út í mínus, peningalega séð en ég gerði hins
vegar alveg slatta í sumar fyrir peningana...
1. Fór út á Hróaskeldu
2. Sleppti ekki einni helgi varðandi drykkju og leiðindi í allt
sumar(reyndar alveg síðan þar síðasta sumar)
3. Sleppti öllu kvennafari, var
læstur at the time
4. Var að vinna á Golfvellinum mínum og var boðið að fara út að
mennta mig í þessu ágætis starfi, sem ég þáði með þökkum og er ég á
leiðinni út næsta haust.
5. Ældi yfir ágætis vin minn á
tónleikum...(hápunktur)
Ok ég var kannski að ýkja smávegis þegar ég sagði að ég hefði gert
slatta, en ég gerði allavega eitthvað...
Ætla bara hafa þetta stutt og laggot í dag krakkar mínir, kem
brjálaður með meira efni eftir smá!
Anywayz.... Friiiiiður
»
10.03.2006 15:44:55 / Clemento
vegna þrálátra meiðsla í nös þá verð ég því miður að leggja
lykklaborðið á hilluna...
friiiiiiður
»
02.03.2006 16:24:56 / Clemento
Hmm... Orðið soldið langt síðan ég
hef hent einhverju hér inn, en langt í frá að ég sé hættur, gott
eða slæmt, ég bara hreinlega veit ekki. En ég vona samt sem áður
að þið fáið einhverja ánægju eða fyllingu af einhverju tagi af
því að lesa það sem ég hef að segja.
Ég bara hreinlega hef ekki haft “tíma”
til þess að skrifa neitt, því af einhverjum ástæðum þá finn ég mér
alltaf eitthvað sem er ofar í
forgangsröðuninni...
En ég var búinn að lofa að tileinka
þessa færslu til “vinkonu” minnar sem ég gerði vondann grikk um
daginn(ómeðvitað að sjálfsögðu).
Málið er semsagt þannig að þessi
“vinkona” mín svaf hjá mér í vikunni, sem er ekki frásögu færandi
nema hvað ég sofna eftir langt og gott spjall, kúr og með því.
Síðan vakna ég seinna um nóttina við að hún segir við mig
“Nei Einar nú er tími til að sofa” (þá var ég
eitthvað að vesenast í henni) og meira man ég ekki. Síðan vöknum
við daginn eftir og hún er eitthvað skrítin blessunin, eins og hún
sé fúl eða eitthvað svoleiðis, segir voðalega lítið(allir gaurar
sem lesa þetta kannst við þetta). Og síðan bara fylgi ég henni til
dyra og kyssi hana og þetta heldur áfram að vera svona kjánalegt,
engin ástríða í þessum kossi, engin tunga, ekki neitt
!
Ég var búinn að pæla í þessu allan
daginn, þangað til að ég fékk nóg og hringi í hana um kvöldið og
spyr hana út í nóttina, hvort ég hafi gert eða sagt eitthvað til að
verðskulda silent treatmentið ?? Hún verðus soldið dularfull og
segir: “ mannstu þegar þú varst að vesenast í mér eitthvað
í nótt ?” ég segi “já svona dauflega” hún
til baka “mannstu hvað þú sagðir við mig ?” ég með
svitakrika og hnút í maganum styn út úr mér “Nei”
þá segir hún ísköld “þú kallaðir mig öðru nafni”
hárin rísa á hnakkanum á mér, fer alveg í kerfi segi fyrirgefðu og
það er nú ekki oft sem ég biðst afsökunnar. Þá segir hún mér nafnið
á stelpunni sem ég sagði, sem er nánar tiltekið nafnið á
fyrrverandi minni !!
En þetta reddaðist því þessi “vinkona”
mín er það yndisleg og góð manneskja að hún hló bara af mér og
fyrirgaf mér allt áður en ég náði að biðjast afsökunnar
!
Djöfull þarf maður að standa sig núna
DAMN !
En já góð sleikjuræða hérna hjá manni,
more to come “vinkona” en samt bara in private.
Djöfull er maður mikið
hyski.
»
21.02.2006 01:08:24 / Clemento
Lífið...
Búinn að vera að
velta þessu mikið fyrir mér í dag. Þú fæðist einn daginn, ert alinn
upp af foreldrum þínum og fólki í kringum sem kennir þér hvernig
skuli haga sér í nútíma þjóðfélagi. Þú í rauninni veist ekki neitt
fyrr en þú ert orðinn svona 18 ára (allavega ég). Þá fara allir
möguleikanir að renna upp fyrir þér, hvað þú hugsanlega getur gert
við þennan stutta tíma sem þér er gefinn hér. Flestir velja
“öruggu” leiðina, þá er ég að tala um að fara eftir þessari formúlu
sem foreldrar manns eru búnir að reyna að hamra inní hausinn á þér
síðan þú mannst eftir þér. Fara í skóla, fá þér góða vinnu, bíl,
hús, kött, og síðan þegar lengra er haldið finna sér maka og punga
út nokkrum börnum. Svona gengur þetta kynslóð eftir kynslóð, en
þetta er bara lífið eins og ég þekki það. Ísland, 300.000 manns og
maður þykist vita eitthvað um þetta, hvað með alla hina ? Tæpir 6
milljarðar út í heimi (held ég) og ég einhvern veginn efa það að
þetta sé algengasta leiðin hjá fólkinu í heiminum. Mig langar að
vita hvað þau gera. Mig langar að prófa eitthvað, ég er ekki að
segja að ég hafi það eitthvað slæmt, þvert á móti, ég hef það
hrikalega gott. Ég er heldur ekki að segja að Ísland sé of lítið
fyrir mig, það er eiginlega of stórt fyrir mig. Eina sem ég er að
segja er að ég held að mig langi ekki að fara þessa hefðbundnu
leið.
Ég held að tilgangur
lífsins sé ekki eitthvað lífsgæðakapphlaup, hver á mest af þessu og
hinu þessu. Ég held að það sé í rauninni að gera það sem þú vilt,
finna virkilega það sem gerir þig hamingjusamann. Að sjálfsögðu
virkar þessi formúla sem ég var að tala um hérna áðan fyrir suma,
en það einhvern vegin heillar mig ekkert allt of mikið. Þeir sem
þekkja mig vita að ég tala oft um að flytja eitthvað út, en ég er
svona að gera mér grein fyrir að þetta er sennilega einhver dulin
flóttaleið í mér, til þess í raun að sleppa við að díla við hlutina
hér. Af hverju held ég að hlutirnr séu betri annars staðar ? Grasið
grænna hinu megin ? Ég held það ekkert, mig hreinlega langar bara
að vita það. Er þetta as good as it gets eða hefur lífið og þessi
heimur meira upp á að bjóða...
Fyrir ykkur sem
þraukuðuð þennan blessaða pistil minn, kommentið á þetta og látið
mig vita ef ég er að rugla eitthvað...
friiiiiiður
"Kickin Back In The Shadows,
Got No Need For The Light, Who's Sorry Now Old Timer Look At How
You spent Your Life"
»
20.02.2006 02:44:00 / Clemento
Nýtt Fresh
shit !
Eitt Trylltasta
laugardagskvöld sem ég hef fokking upplifað ! Byrjaði með Crunk
party hjá Steinari, í LA með kempum úr KR B-ball liðinu, og síðan
haldið niður í bæ. Menn stoppaðir fyrir ölvunarakstur á leiðinni
niðrí bæ þar sem fokking leigubílastöðin svarar ekki, nefni engin
nöfn samt sem áður. Komum inn á Prikið, og finnum strax tvö sæti
við barinn, hlömmum okkur niður og áfengið byrjar að flæða...
áfengið búið að flæða í soldinn tíma, ég orðinn sótaður kem með
eina hugmynd... “það er vissara að rífa sig úr bolnum og vera bara
ber að ofan, blessuð blíðan og maður er nú svona helvíti vel af
guði gerður” (ég að hugsa) Geðveikin hættir ekki í manni byrja rífa
bolina hjá félögunum æpandi “Buy a new one you rich
motherfucker” eins og apaköttur... Endaði í afskaplega
hressandi merkingum og vatnsslag hjá mér og Óla Power og frétti að
some guy named Melvin hafi tekið Rick James á þetta og slegið
barþjóninn á prikinu....
Anywayz, ég er
þreyttur og þunnur og man ekki hvernig þetta var en ef þið viljið
skýrslu á atburðunum þá hringið í ritarann minn...
Peace
»
14.02.2006 18:45:08 / Clemento
Aight, ég vil ekki vera að spila
einhvern Badass, þó svo ég sé það en hey !
Klukk....?
What the fuck is that anywayz !? Og
hver byrjaði með þetta shit !?
Segja leiðinlegar staðreyndir um
sjálfann sem ÞÚ lesandi góður nennir ekki að lesa... En þar sem ég
er að reyna að snúa við blaðinu, vera svolítið huggulegur og
tillitsamur við almúgann (Sunna Dís) þá skal ég gera
þetta...
4 störf sem ég hef unnið um
ævina:
-
Golfvellinum
Korpu
-
Örninn
-
Mangó Grill
-
Sellin
Crack
4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og
aftur:
-
Dumb n’ Dumber
-
Good Will
Humping
-
Fituhlunkurinn Fær Á
Broddinn
-
Ástarhlunkur
4 staðir sem ég hef búið á;
-
Hlíðarnar
-
Graveyard
-
Nesið
-
Streets of
Compton
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar;
-
Family Guy
-
Simpsons
-
24
-
Office
4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan
bloggið;
-
Lots n’ lots of
porn
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum;
-
Danmörk
-
Bretland
-
Portugal
-
yo mama
4 matarkyns sem ég held upp á;
-
Sjávarréttir
-
Önd
-
Nautakjöt
-
Wings !
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna;
-
Á einhverri
strönd
-
Compton
-
Brooklyn
-
eða bara á einhverjum
barstól
Jæja þá er þessu lokið og ég ætla ekki
að klukka neinn, Hell No !
Þetta eru tíu mínútur sem ég fæ
aaaaaldrei aftur !
Eitt ætla ég samt að gera… Sunna… I
Pity You !
Þar til næst
Mofuckuz
Kv. Alveg Brjálaður Perm
!
»
13.02.2006 12:39:45 / Clemento
Enn ein helgin
liðin…
Ég aldrei þessu vant ákvað að hrynja í
það, og var það gert af krafti. Byrjuðum að kvöldið heima hjá óla
ægis, mad pimpin með mojito sem gestgjafinn blandaði fyrir okkur
félagana skuggalega metro. Afskaplega afdrifaríkt kvöld þar á ferð
nema fyrir Óla… aldrei hef ég séð líklegri mann ! En ég ætla ekkert
að fara neitt nánar út í það, eina sem ég segi, my sympathies
cuz.
Vil biðjast afsökunnar á beili from
death á laugardag, soldið leiðinlegur, ætlaði að hitta ma
Julie á tha Sticky Icky en það fór einhvern veginn í
vaskinn. Lentum í staðinn í einhverju beef, en ég meina þú fokkar
ekkert í svona Graveyard thugz, das how it goes !
Langar að gefa shout out til Robba
félaga míns sem ég ætla að kalla hér eftir Billy Bob eða eitthvað
álíka whitetrash þar sem hann er byrjaður með
stjúpsystur sinni, way to go Billy Bob
!
Gleymdi næstum því einu, vil gefa shout
out til hans bróður míns fyrir að styggja einhvern Kakó-gramsara,
eitt vandræðalegasta sem ég hef lent í á minni tíð !
Þar til næst....
Friiiður
»
09.02.2006 20:05:34 / Clemento
Ég er búinn að lenda svolítið í því
upp á síðkastið að ég ætla að fara skella einhverju hér inn, en
geri mér síðan grein fyrir því að ég hef ekkert að segja, alveg
þurr.
Skrítið vegna þess að ég get talað
alveg látlaust um hluti sem skipta engu máli, en núna þegar ég lít
yfir færslur hjá mér upp á síðkastið þá sé ég að ég er orðinn einn
af þessum fréttabloggurum. Hvað ég gerði seinustu helgi, einhver
fokkin dagbók. Eitthvað sem þetta átti alls ekki að
vera.
Þegar ég byrjaði með þetta blessaða
blogg þá átti þetta að vera dægrastytting fyrir sjálfann mig og
aðra, leið til að sleppa reiðinni eins stöku sinnum og leið til
þess að veiða dömur með mínum einstaklega dáleiðandi ritstíl, sem
er reyndar alveg að virka.
En þetta er farið að vera upptalning á
hlutum sem ég er búinn að gera upp á síðkastið sem fyrir mér
hljómar ekkert allt of spennandi. Er þetta hugmyndin bakvið bloggið
? Eða er þetta bara ég sem finnst það boooooring
?
Mann langar að skrifa um einhverja
þýðingarmeiri hluti, hugsanlega eitthvað sem skiptir máli, en það
einhvern veginn gerist aldrei neitt, það spennandi að maður vilji
segja frá, eða hlutirnir of persónulegir til þess að vera skella
þeim á internetið.
Það sem mig vantar er einhver fersk
hugmynd, eitthvað til að rífa mann upp í þessu.
Einhverja nýjung í þetta dæmi... Hjálp
?
En ég er alls ekki að skíta yfir það
að segja hvað hefur drifið á daga manns, ég meina það gerast alveg
hlutir hjá manni þess verðir að tala um þá.
Til dæmis þá er allt að gerast hjá
manni þessa dagana, hægt að orða það þannig eins og einn góður
drengur sagði, að maður sé að missa guðsgjöfina. En nóg um það ég
kannski fer betur út í þá sálma seinna þegar það er komið á hreint
vil ekki vera að slúðra neitt nomsayin !
Damn, það er fimmtudagur og ég er með
case of Mondays, ég er búinn að liggja upp í rúmi ælandi úr mér
allt vit, hálfblindur og þetta kallast víst mígreni, ætti samt að
heita fokking-andskoti ! Því ég hef ekki blótað jafn mikið síðan
Heitar Lummur komu fram í sviðsljósið.
Talandi um það helvíti, þvílík fokking
viðrini einhver 4 mini celebs, sem er merkilegri en það að þau geta
ekki skapað sinn eiginn feril. Þurfa eitthvað lið bakvið sig til
þess að semja lög, texta og segja þeim hvar, hvenær og hvernig þau
eiga að hreyfa sig fuckin idiots...
Jæja voðalega er maður eitthvað bitur
og illur á þessum drottins degi.
Ég er að lesa yfir þennan pistil og
það er eins og gaur sem er nýbúinn að bíta í sítrónu hafi skrifað
þennan blessaða pistil.
“I aint a playah, I just fuck
alot “ -Big Pun-
»
06.02.2006 21:16:01 / Clemento
Jæja... Langt síðan maður hefur
skellt einhverju hér inn en ekki örvænta ég er enn til
staðar.
Ein trylltasta helgi í miðbæ RVK svo
lengi sem elstu menn muna. Sumir ekki búnir að sofa síðan á
fimmtudag og eru að koma niður as we speak...
Rólegur á föstudag, var að passa upp á
teiti hjá lil sys þar sem hún átti nú afmæli blessunin og ekkert
gerðist verra en það var stolið bjór frá mér, fuckin
youngsters.
Hvað varð með virðinguna fyrir þeim
sem eldri eru, ég er nú ekki sérlega aldraður og svo sannarlega
enginn gárungur en ég man hvernig ég var back in tha
dayz.
Sá ungling og það var tekin auka
krókur around tha block. En núna hefur maður það ekki í sér að slá
niður 6 ára börn sem kalla mann homma þegar maður labbar útí sjoppu
eitilharður með vindil í kjaftinum og kallaður
Pabbinn. Er ég slakur eða eru þessi börn growin up on tha
streetz ?
Þegar út í það er farið þá er þetta
reyndar Grafarvogurinn, hverfið sem ég hélt að maður væri
borgarstjórinn af en eitthvað hefur breyst. Ég er búinn að skipta
út lyklinum af borginni fyrir brotið egó, virðingu fyrir háðsglott
og extended middle finger, heimur versnandi fer.
Mætti í afmæli hjá Magga félaga mínum
á laugardag, fyrir þá sem vita ekki hver maðurinn er þá get ég sagt
ykkur að afi hans var Bjössi Bolla í gamla daga.
Anywayz tryllt party
þar á ferð og menn orðnir skuggalega ölvaðir. Það var eins og það
væri fullt tungl, þvílíkt beef í gangi og svona 75% af liðinu farið
heim fyrir Derrick.
Ég einmitt fékk það hlutverk á
laugardaginn að bjarga íslensku þjóðinni, þá er ég að tala um að ég
var í því að bjarga yngismeyjum, í fullum herklæðu á hvíta hestinum
mínum, taki það til sín sem eiga.
Heimskasta bæjarferð sem ég hef
nokkurn tímann lent í, fékk far á laugarveginn, hitti félagana, inn
á prikið, dreginn út bakdyrameginn og hélt áfram að sinna
þjóðinni.
Þar liggur vinkona mín í valnum, útúr
vitlaus á því og þurfti að komast heim.
Valli og Erna húkku í bíl meðan ég
hélt X á floti. Kom síðan heim til hennar eftir að þurfa vaða í
gegnum eld og brennistein bakvið hús að leita að lyklunum af
íbúðinni .
Þá byrjar vesen sem ég ætla ekki alveg
að fara út í, maður vill bara upplifa svona einu
sinni...
Anywayz vil þakka fyrir aaaaaaagalega
góða helgi !
»
Síður: 1 2
|
|